Thursday, November 26, 2009

Ísland á morgun

sjáumst þar

Friday, November 20, 2009

Vikurnar

halda áfram að þjóta hjá.
Ein vika í jólafrí.

Wednesday, November 18, 2009

Gormun

Í dag lærði ég á gormunarvél.
Mögulega hápunktur skólaársins.
Í framtíðinni mun ég eingöngu sækja um vinnur sem gormunarsérfræðingur.

Friday, November 13, 2009

Vikurnar

bókstaflega fljúga hjá.
Tvær vikur í jólafrí.

Friday, November 06, 2009

Skrifstofustörf

eru góð skemmtan.
Það er gaman að ljósrita
Það er gaman að setja ótrúlega mörg bréf í umslög
Það er gaman að raða endalaust mörgum reikningum í kennitöluröð
Það er gaman að setja blöð í möppur
... og svona mætti lengi telja
EN
að skrifa umsóknir er EKKI góð skemmtan, og SJITT hvað það getur tekið langan tíma

Thursday, November 05, 2009

Vetur

Í gær sá ég þrjú snjókorn.
Í dag sá ég dáldið fleiri snjókorn.
Þá er formlega kominn vetur.
Og þá koma bráðum jól.
Rétt rúmlega þrjár vikur í jólafrí.
Og fimmtíuogþrír dagar í þrítugsafmæli.

Sunday, November 01, 2009

Vetur?

Yfirleitt mætir veturinn í Útlandinu stundvíslega 1. nóvember. Ekkert bólar hins vegar á honum þetta árið.
Veðurspá næstu vikuna: Rigning
Það er semsagt enn haust um ófyrirséða framtíð.

Er hálfnuð með önnina. Þessi önn er afar stutt frá mínum bæjardyrum séð. Skóli í 3 vikur. Frí í eina (vikuna sem byrjar á morgun). Og svo aftur skóli í 3 vikur. Þá er komið jólafrí.
Áætluð koma til Ísalands: 27. nóvember.

Það er eitthvað að gera í skólanum. Samt ekkert svo mikið. Aðallega er maður að brasa við að klára að semja allt fyrir lokatónleika. Stefnan er að klára það fyrir áramót, og nota síðustu önnina til að tjilla... eða eitthvað.

Það er líka eitthvað að gera í lúðrasveit. Spiluðum í afþreyingarkeppni í gær. Skemmtum okkur ákaflega vel. Settum höfuðáherslu á búninga og sviðsframkomu, þar sem æfingar á tónleikaprógramminu voru í færra lagi. Þrjár. Það virkaði ágætlega. Lentum í 2. sæti. Ég spila semsagt í næstskemmtilegustu lúðrasveitinni í Útlandinu.
Næstu tónleikar eru eftir 2 vikur. Og 3 æfingar. Ekkert verið að spandera alltof mörgum æfingum fyrir hverja tónleika.

Þetta var skýrsla dagsins.